vefurinn 10okt.com er orðin virkur

september 30, 2008
Nýtt merki 10okt.com

Nýtt merki 10okt.com

Opnaður hefur verið nýr vefur á slóðinni http://www.10okt.com og beinum við öllum heimsóknum þangað. geð10 vefurinn verður opin fram að 10. október en þá mun 10okt.com taka alfarið við.

Hlökkum til að sjá þig!


Dagskrá 10 okt

september 26, 2008

16.00 Setningarávarp Forseta Íslands

16.10 Kársneskórinn syngur nokkur lög

16. 25 Ósk Sigurðardóttir frá Barna og unglingageðdeild LSH

16. 35 Atriði frá Samfés

16. 45 Innlegg frá Götusmiðjunni.

17. 00  Leiklistardeild MH.

17. 15  Valgeir Skagfjörð frá Regnbogabörnum.

17. 30 Elín Eyþórsdóttir

17.45  Hanna Birna Kristjánsdóttir Borgarstjóri?

Kynnir verður Felix Bergsson.


Elín Eyþórsdóttir gefur kost á sér

september 26, 2008

Vegna mikilla anna átti Ragnheiður Gröndal ekki tök á því að koma fram í Perlunni föstudaginn 10 okt. Eftir ábendingu frá Ragnheiði var haft samband við Elínu Eyþórsdóttur, unga ogefnilega söngkonu. Ellen hefur nú gefið kost á sér og mun hún að öllum líkindum hita upp annaðhvort fyrir Borgarstjóra eða formann Velferðarráðs. Elín fékk sitt fyrsta stóra tækifæri nú um dagin nþegar hún hitaði upp fyrir bresku hljómsveitina Tindersticks á Nasa.

Tónlistargagnrýnandi 24 stunda lýsir tónlist Elínar á eftirfarandi hátt: “Elín spilar og syngur blús á ensku af gamla skólanum með djúpri og sérstakri rödd sinni. Kyrrláta og tregafulla tóna með ljúfsárum textum er gætu alveg eins verið úr smiðju Suzanne Vega eða Joni Mitchell. Dýpt hennar og einlægur flutningur á án efa eftir að koma tónleikagestum á óvart.”

Elín á ekki langt að sækja tónlistarhæfileika sína þ.e. foreldrar hennar eru tónlistarmennirnir Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson.


Drög af endanlegri dagskrá 10 okt

september 23, 2008

16.00 Setningarávarp Forseta Íslands

16.10 Kársneskórinn syngur nokkur lög

16. 25 Ósk Sigurðardóttir frá Barna og unglingageðdeild LSH

16. 35 Atriði frá Samfés

16. 45 Innlegg frá Götusmiðjunni.

17. 00  Leiklistardeild MH.

17. 15  Valgeir Skagfjörð frá Regnbogabörnum.

17. 30 Ragnheiður Gröndal

17.45  Hanna Birna Kristjánsdóttir Borgarstjóri?

Kynnir verður Felix Bergsson.

Nánari upplýsingar um innihald erindanna verða veitt þegar nær dregur.


Borgarstjóra boðin þátttaka í 10 okt

september 23, 2008

Vegna yfirfærslu geðheilbrigðismála frá Ríki til Borgar hefur verið ákveðið að bjóða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Borgarstjóra að flytja erindi í Perlunni á geðheilbrigðisdaginn. Ef Hanna Birna hefur tök á því að vera með er líklegt að hún slíti dagskránni, verði með síðasta innleggið. Það þótti viðeigandi að gefa borgarstjóra færi á  að lýsa stefnu og framtíðarsýn stærsta sveitarfélags í þessum stóra málaflokki eftir yfirtöku á honum . Búist er við svari á næstu dögum.


Ragnheiður Gröndal nánast örugg

september 12, 2008

Eftir að í ljós kom að Magni hafði ekki tök á því að koma fram í Perlunni var hafist handa við að leita að staðgengli. Niðurstaðan varð að bjóða Ragnheiði Gröndal að taka þátt. Ragnheiður tók beiðninni mjög vel og stefnir allt í að hún verði með. Þetta eru mjög góð tíðindi fyrir geðheilbrigðisdaginn þ.e. Ragnheiður er ekki aðeins góður listamaður heldur einnig góð fyrirmynd. Samanber hreinskilna lýsingu hennar á barátu við andlegt mótlæti í sjónvarpsviðtali í upphafi þessa árs.


Kyrrðarstund í Dómkirkjunni

september 9, 2008

Miðvikudaginn 10. september 2008 verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni í tilefni Alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna. Athöfnin mun standa frá kl. 20:00 – 20:30. Að lokinni athöfn í kirkjunni verður gengið niður að Tjörn þar sem kertum verður fleytt til minningar um þá er fallið hafa frá fyrir eigin hendi. Sambærileg kyrrðarstund hefur undanfarin tvö ár verið hluti af dagskrá geðheilbrigðisdagsins en í ár var tekin ákvörðun um að minnast Alþjóða dags sjálfsvígsforvarna í fyrsta sinn sérstaklega. Þetta verður vonandi til þess að báðir þessir dagar 10 sept og 10 okt nái að festa sig í sessi í vitund þjóðarinnar þrátt fyrir að þeim fylgi e.t.v. ólíkar áherslur.

Dagskrá kyrrðarstundarinnar verður á þessa leið:

Marteinn Friðriksson, organisti leikur tónlist
Katrín Andrésdóttir segir frá reynslu sinni
Sr. Birgir Ásgeirsson flytur hugleiðingu og bæn


Ólafur inn, Magni út

september 8, 2008

Geðheilbrigðisdeginum hafa nú borist bæði góðar og slæmar fréttir. Fyrst góðu fréttirnar. Forseti Íslands Herra Ólafur Ragnar Grímsson hefur fallist á það að vera verndari dagsins og halda stutt opnunarávarp í Perlunni þann 10 október. Það er mikil ánægja með þessar fregnir enda erfitt að finna verðugri arftaka Frú Vigdísar Finnbogadóttur, sem hefur verið verndari dagsins undanfarin ár, en einmitt hann. Slæmu fréttirnar eru hinsvegar þær að söngvarinn vinsæli Magni Ásgeirsson hefur þurft að draga sig í hlé sökum veikinda. Við þökkum Magna góðan hug í okkar garð og óskum honum góðs bata.  Hver staðgengill Magna verður mun koma í ljós á næstu dögum.


Úr farþegasætinu

september 4, 2008

Þegar undirbúningurinn að geðheilbrigiðisdeginum hófst í ár voru til fjármunir til þess að dekka helstu útgjaldaliði, þ.e. leigu á húsnæði og þeim tækjabúnaði sem þurfa að vera til staðar til þess að halda hátíðardagskrá. Þörfin á því að fá fjármagn frá fyrirtækjum var því ekki hins sama og oft áður. Í kjölfarið spunnust hugmyndir um hvernig væri hægt að vinna áfram með þessum hóp og virkja þá til þátttöku. Eftirfarandi er afraksturinn af því. Byrjað verður að hafa samband við fyrirtækji útfrá þeim forsendum sem tíjundaðar eru hér að neðan í síðar í dag.
Read the rest of this entry »


Tónleikar í tengslum við 10 okt?

ágúst 29, 2008

Geðhjálp mun á næstunni gefa út geisladisk í því skyni að fjármagna starfsemi sína. Líklegt er að haldnir verði tónleikar í tengslum við útgáfu hans. Ef af verður munu tónleikarnir verða haldnir einhverja daganna fyrir geðheilbrigðisdaginn eða rétt á eftir. Ekki þykir vænlegt að halda tónleika 10 október þ.e. þá verða haldnir minningartónleikar um Vilhjálm Vilhjálmsson. Því er hætt við að kraftar tónlistarfólks sem og athygli áhorfenda og fjölmiðla beinist að þeim viðburði. Auk þess hafa aðstandendur Geðheilbrigðisdagsins hafa skipulagt dagskrá í Perlunni fyrr sama dag. Meira verður fjallað um fyrirhugað tónleikahald þegar málin skýrast.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.