Miðvikudaginn 10. september 2008 verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni í tilefni Alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna. Athöfnin mun standa frá kl. 20:00 – 20:30. Að lokinni athöfn í kirkjunni verður gengið niður að Tjörn þar sem kertum verður fleytt til minningar um þá er fallið hafa frá fyrir eigin hendi. Sambærileg kyrrðarstund hefur undanfarin tvö ár verið hluti af dagskrá geðheilbrigðisdagsins en í ár var tekin ákvörðun um að minnast Alþjóða dags sjálfsvígsforvarna í fyrsta sinn sérstaklega. Þetta verður vonandi til þess að báðir þessir dagar 10 sept og 10 okt nái að festa sig í sessi í vitund þjóðarinnar þrátt fyrir að þeim fylgi e.t.v. ólíkar áherslur.
Dagskrá kyrrðarstundarinnar verður á þessa leið:
Marteinn Friðriksson, organisti leikur tónlist
Katrín Andrésdóttir segir frá reynslu sinni
Sr. Birgir Ásgeirsson flytur hugleiðingu og bæn