Vegna yfirfærslu geðheilbrigðismála frá Ríki til Borgar hefur verið ákveðið að bjóða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Borgarstjóra að flytja erindi í Perlunni á geðheilbrigðisdaginn. Ef Hanna Birna hefur tök á því að vera með er líklegt að hún slíti dagskránni, verði með síðasta innleggið. Það þótti viðeigandi að gefa borgarstjóra færi á að lýsa stefnu og framtíðarsýn stærsta sveitarfélags í þessum stóra málaflokki eftir yfirtöku á honum . Búist er við svari á næstu dögum.