Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldin víðsvegar í heiminum þann 10 október. Ég heiti Einar G. Kvaran og tek þátt í því að skipuleggja Alþjóða geðheilbrigðisdaginn á Íslandi í ár. Markmiðið með þessu bloggi er að kynna daginn og fá hugmyndir frá ykkur. Ef vel tekst til þá getur þessi síða hugsanlega orðið vettvangur fyrir umræðu, atburði og öðru sem tengist geðræktarmálum hjá ungu fólki í framtíðinni. En fókus geðheilbrigðisdagsins í ár á Íslandi er einmitt á andlega heilsu þessa hóps.
Að mínu mati er eitt af lykilmarkmiðunum með deginum að reyna að brjótast út úr þeirri hugsun, sem hefur verið ríkjandi, að geðheilbrigðismál snúist fyrst og fremst um geðræn vandamál. Með þessu er ekki verið að gera lítið úr geðsjúkdómum og þjáningum af þeirra völdum heldur er verið að halda þeirri staðreynd á lofti að andleg heilsa hvers og eins er nauðsynleg undirstaða fyrir farsæld viðkomandi. Geðheilbrigðisdagurinn á að vera dagur allra.
Annað markmiðið með geðheilbrigðisdeginum er að sjálfsögðu að koma því efni sem hefur verið valið að einblína á til skila á sem markvissastan hátt. Við upphaf undirbúningsvinnunar í ár var ákveðið að Geðheilbrigðisdagurinn í ár skildi fást við andlegt heilbrigði barna og ungmenna. Þetta var síðast gert árið 2003. Þrátt fyrir þetta var ákveðið að endurtaka leikinn nú í ljósi mikilvægis þessa málaflokks. Til marks um það er sú einfalda staðreynd að uppeldi og aðbúnaður barna hefur mikil áhrif á hvernig þeim farnast í lífinu. Til þess að gera þetta markvissara var ákveðið að vinna útfrá sérstöku þema þ.e. mikilvægi samverunnar. Hér er sérstaklega átt við mikilvægi samveru barna og foreldra sem er staðfest af rannsóknum. Þetta vekur t.d. spurningar um hvaða áhrif það hefur á börnin ef foreldrar hafa ekki nægan tíma til þess að sinna þeim? Og að því gefnu að yfirvofandi sé kreppa þar sem að talsverður fjöldi fólks kemur til með að missa vinnuna, hvernig komum við í veg fyrir að slík staða komi niður á börnum? Annað atriði sem einnig er mikilvægt varðandi samveruna er hvernig börn ná að fóta sig í félagahóp. Einelti og félagsfælni eru til dæmis vandamál sem varða félagsleg tengsl og geta haft mikla erfiðleika í för með sér fyrir ungt fólk sem er yfirleitt háðara félagahópnum en fullorðnir. En þrátt fyrir að það sé nauðsynlegt að koma með uppbyggilega gagnrýni er mikilvægt að festast ekki í því að tala um vandamál og gleyma ekki að horfa til þess sem vel er gert.
Að lokum er geðheilbrigðisdagurinn ákveðið tækifæri fyrir þá fjölmörgu aðila sem tengjast málaflokknum, þ.e. fást við andlegt heilbrigði, með beinum eða óbeinum hætti að koma fram og vekja athygli á því sem þeir eru að gera og mikilvægi þess. Til dæmis með því að skrifa í blöð, á netið, með því að taka þátt í undirbúningsvinnunni fyrir 10 okt, eða með einhverjum öðrum hætti.
Við sem höfum tekið þátt í undirbúningnum fyrir 10 okt áður höfum fundið fyrir miklum meðbyr í samfélaginu. Nánast allir sem hefur verið leitað, s.s. skemmtikraftar og fyrirlesrar hafa fallist á að koma fram í tengslum við daginn án þess að þiggja fyrir það greiðslu. Það hefur verið auðvelt að fá styrktaraðila og fjölmiðlar hafa sýnt málefninu áhuga. Miðað við hversu langt undirbúningsvinnan er komin nú þegar er allt útlit fyrir að 10 okt haldi áfram að festa sig í sessi í ár.