Undanfarin ár hefur Vigdís Finnbogadóttir verið verndari Alþjóða geðheilbrigðisdagsins og sett daginn með stuttu ávarpi. Mikil ánægja hefur verið með aðkomu Vigdísar og því var leitað til hennar um áframhaldandi samstarf í ár. Vigdís tók vel í þetta og staðfesti þátttöku. Hún var sérstaklega ánægð með þema dagsins, þ.e. áhersluna á andlega heilsu barna og samskipti þeirra og foreldra. Seinna kom í ljós að Vigdís hefur því miður ekki möguleika á að taka þátt í ár því henni hefur verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við Háskólann í Montreal. Afhending þeirrar viðurkenningar fer fram 10 októver, þ.e. sama dag og dagskráin í Perlunni fer fram. Vigdís hringdi í mig og sagði að sér þætti mjög leitt að geta ekki verið með, að henni þætti mjög vænt um þennan dag og að hún lofaði að vera með okkur í anda. Nokkrar hugmyndir hafa komið fram varðandi það hver gæti orðið staðgengill Vigdísar. Ákveðið var að leita fyrst til forsetans, þ.e. Ólafs Ragnars, og hefur fyrirspurn verið send til skrifstofu hans. Aðrir sem hafa verið nefndir varðandi það að opna geðheilbrigðisdaginn eru Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Lýðheilsustöð. En hún hefur unnið mjög gott starf í geðmálunum á undanförnum árum og gaf m.a. út bók um Geðorðin 10 fyrir síðustu jól.