Posts Tagged ‘Samfés’

Samfés ætlar að vera með

ágúst 26, 2008

Náðst hefur samkomulag við Samfés (samtök íslenskra Félagsmiðstöðva) um samstarf varðandi 10 okt. Fyrsta skrefið verður að fulltrúar Hugarafls og væntanlega einnig Lýðheilsustöðvar munu taka þátt í fræðslu um geðmál fyrir leiðbeinendur sem starfa í félagsmiðstöðvum. Annar liður er að þema geðheilbrigðisdagsins verður tekið fyrir á landsmóti Samfés sem haldið verður á Suðurnesjunum helgina fyrir 10 okt. Í þriðja lagi verður sérstök áhersla lögð á geðheilbrigðisdaginn í starfi félagsmiðstöðva vikuna í aðdraganda 10 okt og á sjálfan geðheilbrigðisdaginn. Þess utan verður atriði frá Samfés í Perlunni á geðheilbrigðisdaginn, að öllum líkindum siguratriðið í úr Söngvakeppni þeirra frá því í fyrra. Það er mikill akkur fyrir Geðheilbrigðisdaginn að Samfés ætli að taka þátt. Félagsmiðstöðvarnar vinna með aðal markhópi dagsins í ár, þ.e. ungu fólki. Markmið félagsmiðstöðvana er mjög í anda geðræktar þ.e. að gera uppbyggilega og skemmtilega hluti með þeim sem stunda þær. Bent hefur verið á að leiðbeinendur á félagsmiðstöðvum eru oft í persónulegri tengslum við ungt fólk en t.d. kennarar sem eru bundnir af þeirri skildu að auka þekkingu nemenda af tilteknu námsefni. Það er einnig spurning að hve miklu leyti það er í verkahring kennara að hlúa að persónulegum og félagslegum þörfum nemenda en félagsmiðstöðvarnar eru m.a. að fást við þessa þætti í sínu starfi. Annar kostur við að fá Samfés inn er að þeir eru mjög virkir á landsbyggðinni en það hefur oft verið raunin með atburði eins og Geðheilbrigðisdaginn sem snúast m.a. um uppákomur sem eru haldnar í Reykjavík að landsbyggðin hefur orðið útundan.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.