Posts Tagged ‘undirbúningur’

Perlan 10 okt – Undirbúningurinn hingað til.

ágúst 22, 2008

Fyrsti undirbúningsfundurinn vegna Alþjóða geðheilbrigðisdagsins var haldinn í húsnæði Geðhjálpar þann 6 júní. Það var fjölmennt á fundinum og vitað að enn fleiri aðilar mundu koma að undirbúningnum þannig að ákveðið var að skipta mannskapnum í tvo hópa. Annar hópurinn tók að sér að sjá um að skipuleggja dagskrá á sjálfum deginum, hinn hópurinn tók að sér að sjá um kynningarmál, fjármál og annað sem kemur að utanumhaldi. Í dagskrárhópnum eru nú fulltrúar frá Hugarafli, Klúbbnum Geysi, Geðhjálp, Rauða krossinum, Barna og unglingageðdeild (BUGL) og fulltrúi notenda á Geðsviði LSH.

Undirbúningsaðilar hafa skiptst á að halda fundina og verður næsti fundurinn haldinn í Geðhjálp næstkomandi þriðjudag, þ.e. 27 ágúst. Eftir talsverðar umræður var ákveðið að við mundum halda okkur við sömu staðsetningu og í fyrra, þ.e. Perluna. Dagskráin verður tveir tímar, sambland af erindum og skemmtiefni.

Við erum mjög ánægð að nánast allar þeir sem leitað hefur verið til hafa tekið jákvætt í það að taka þátt. Felix Bergson ætlar að vera kynnir. Iðjþjálfarnir á BUGL hafa verið að gera mjög góða hluti, m.a. með Ævintýrameðferð. Ósk Sigurðardóttir yfiriðjuþjálfi á BUGL, mun koma inn á Ævintýrameðferðina í erindi sínu. En þrátt fyrir að fyrirlesarar hafi e.t.v. ólíka nálgun á geðheilbrigðismál munu öll erindin hafa tengingu við þema dagsins þ.e. mikilvægi uppbyggilegrar samveru fyrir andlegt heilbrigði ungs fólks. Það var samdóma álit í undirbúningshjópnum að Götusmiðjan hefði verið að vinna gott starf með ungu fólki í vanda. Þeim var því boðið að taka þátt og hafa þeir tekið boðinu. Einnig þótti rétt að leggja áherslu á eineltismálin. Það var unnið gott átak í þessum málum fyrir nokkrum árum þar sem samtökin Regnbogabörn náðu að vekja mikla athygli á málaflokknum. Nú komin er í gang Olweus áætlun sem margir skólar taka þátt í. En þrátt fyrir að átaksverkefni geti skilað miklu er nauðsynlegt að fylgja þeim eftir. Umræða vegna eineltismáls sem kom upp nú í sumar sýnir hve mikilvægt það er. Haft hefur verið samband við Valgeir Skagfjörð frá Regnbogabörnum. Ef hann hefur ekki tök á því að vera með verður leitað til annars aðila úr þessum málaflokk.

Varðandi skemmtiatriði þótti mikilvægt rétt að það væri ungt fólk sem stæði fyrir þeim. Þeir sem koma fram verða: Kársneskórinn, atriði frá Samfés (Sambandi íslenskra félagsmiðstöðva) og líklega atriði frá leiklistarhóp Menntaskólans við Hamrahlíð. Það fæst væntanlega staðfest um miðja næstu viku hvort Hamrahlíðin verður með.

Aðrir liðir sem tengjast dagskránni eru myndlistasýning og kynnig. Myndlistasýningin mun opna þann 10 okt og standa a.m.k. fram á sunnudaginn 12 okt. Myndirnar eru í eigu BUGL og eru unnar af börnum sem hafa verið hjá þeim. Einnig verður boðið upp á kynningu þar sem fjölmargir af þeim aðilum sem vinna með ungt fólk og eða geðheilbrigðismál kynna starfsemi sína. Þetta ætti því að vera gott tækifæri fyrir áhugafólk að komast í tengsl við aðila sem starfa að þessum málum. Meira verður fjallað um þessa kynningu innan skamms.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.